|

Lindin hefur staðið fyrir útgáfu á fjölmörgum bæklingum, trúarstyrkjandi blöðum og kennsluefni. Lindin hefur einnig komið að útgáfu á geisladiskum og DVD diskum.
Frá því Lindin hóf starfssemi sína hefur markmiðið ávallt verið það sama; að koma út fagnaðarerindi Jesú með hvað hætti sem unnt er. Það hefur verið raunin með útgáfu á bókum, teiknimyndablöðunum, kennslubókum og geisladisknum svo eitthvað sé nefnt.
Lindin hefur líka staðið fyrir framleiðslu á efni sem aðrir hafa gefið út. Þar má nefna útgáfu Hljómar.is á geisla og mynddisknum „Joyful“ með Gospelkór Reykjavíkur sem var gefin út fyrir jólin 2004 og geisladiskinn „Vertu nú yfir og allt í kring“ hugljúfur diskur fyrir svefninn sem Sigríður Helga Ágústsdóttir, sá um.
Þannig hefur Lindin staðið fyrir og stutt við útgáfu á vönduðu kristilegu efni hvort sem það er í formi bóka, blaða, tónlistar eða sjónvarpsefnis.
Verkefni framundan.
Hugmyndir eru uppi um efnisveitu sjónvarps á netinu í gegnum tölvur. í boði verður innlent sem og erlent efni.
Þessa dagana er verið að fjármagna kaup á nýjum myndavélum fyrir myndver Lindarinnar. Talsverð samvinna hefur verið við hinar ýmsu kirkjur í gegnum árin á tækjabúnaði og aðstöðu Lindarinnar. Nú er svo komið að tæki og búnaður myndversins eru úrsér gengin og bráðvantar að endurnýja þann hluta svo að unnt sé að halda áfram þeirri framleiðslu sem Lindin hefur staðið að. Vel hefur gengið að safna og því til staðfestingar kemur fyrsta myndavélin af fjórum til landsins í byrjun október 2009. |