praying_hands

hlusta_off
Ágrip

Hættu áður en þú byrjarUpp úr árinu 1999 hóf Lindin undirbúning að framleiðslu kristilegs sjónvarps- og myndbandsefnis. Hugmyndin var að efla kristilega kvikmyndagerð með framleiðslu á barnaefni og ICI biblíuskólaefni. Síðan þá hefur Lindin kvikmyndagerð stækkað og þróast sem einn hluti af mörgum í trúboði Lindarinnar.

Gospelkór ReykjavíkurÍ upptökuveri Lindarinnar höfum við gert þætti og kynningar fyrir kirkjur og trúboðshópa ásamt forvarnarmyndinni „Hættu áður en þú byrjar“ sem tekur á neyslu eiturlyfja. Lindin hefur einnig framleitt geisladiska og mynddiska (DVD) eins og „Joyful“ sem Gospelkór Reykjavíkur gaf út.

Við teljum að Kvikmyndagerð geti verið öflugt trúboðstæki til að boða fagnaðarerindið. Við viljum því hvetja ykkur til að biðja fyrir Lindinni svo hún geti framleitt meira af vönduðu sjónvarpsefni, sjónvarpsefni með boðskap.

Á Lindinni er fullkomin aðstaða til þess að framleiða sjónvarpsefni. Hvort heldur um er að ræða fræðslu- eða heimilda- myndir, kynningar auglýsingar, barna- og unglinga- efni, spjallþætti o.s.frv.

 

 

JoyfulJoyful

Myndbandagerð
Tónlistarmyndband
Marita
Marita
Guð gaf mér eyra
Guð gaf mér eyra
Púlsinn á Lindinni
Púlsinn á Lindinni
Ævintýravindar
Ævintýravindar
 



Lindin fjölmiðlun - Krókhálsi 4 110 Reykjavík - 567-1818 - Fax: 567-1824 - lindin [hjá] lindin.is