praying_hands

hlusta_off
Mike & Sheila

Mike og SheilaMike og Sheila vinna nánast í öllu því sem við kemur Lindinni. Þau komu hingað í fyrstu sem trúboðar frá Bandaríkjunum árið 1992, en þar höfðu þau starfað sem forstöðuhjón í kirkju sem tilheyrir Assemblies of God hreyfingunni. Mike er hálfur íslendingur en hefur lengst af búið í Bandaríkjunum.

Fyrstu árin eftir að þau komu til Íslands unnu þau við ýmis verkefni og má þar meðal annars nefna dreifingu á Bók Lífsins og stuðning við kristilegt barnastarf. Barnamót í tengslum við Kotmót hvítasunnumanna stendur þar eflaust hæst en þau hófu það starf. Aðrir hafa tekið við þeim kyndli og er það starf í dag stór hluti af mótshaldi hvítasunnumanna um verslunarmannahelgi ár hvert.

Upp úr 1994 stofnsettu þau Lindina. Mike er útvarpsstjóri Lindarinnar og sér um að safna fé til starfsins ásamt því að reka Lindina. Sheila er framkvæmdastjóri Lindarinnar og sér um daglegan rekstur á Lindinni og að allt sé í lagi í öllum deildum. Þau vinna mjög náið saman enda starfað saman í áratugi, lengst af sem forstöðuhjón í Bandaríkjunum. Þau eru að jafnaði við alla virka daga á skrifstofutíma.

Mike og Sheila eru í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu.

• Nánar um starf þeirra á Íslandi á ensku.

 


Heim Starfið Mike & Sheila

Lindin fjölmiðlun - Krókhálsi 4 110 Reykjavík - 567-1818 - Fax: 567-1824 - lindin [hjá] lindin.is